miðvikudagur, febrúar 14


Á tíma tækni og vísinda er við hæfi að taka nógu snemma mynd af nýjasta fjölskyldumeðlimnum! Myndin er nokkuð óskýr en ég vona að þið sjáið hana þó :) Eníveis, ETA er líklega um miðjan ágúst :)

Peningavitið kemur fljótt!!!


Ég var búin að sýna Eiríki tvisvar hvernig maður setur klink í baukinn sinn og það fannst honum mjög spennandi, virtist alveg samþykkja það að maður fær síðan ekki peninginn til baka. Síðan um daginn þá náði hann í veskið mitt, en honum hefur oft þótt gaman að skoða það, taka út kortin, finna myndina af sér og sjá skilríkin mín. En nú tókst honum að opna klink hólfið og var sko ekki lengi að hlaupa inn í herbergið sitt, ná í baukinn og stinga öllum krónunum í baukinn! Ég var bara rænd um hábjartan dag! Síðan var hann voða stoltur af sér og hæst ánægður með afraksturinn :) En greinilegt að peningavitið er komið.